• Description
  • Date
  • Info
Climate Crisis and “the Logic of Masculinist Protection”
Ole Martin Sandberg er fyrsti fyrirlesari fyrirlestraraðar RIKK og GRÓ-GEST á vormisseri 2020 og nefnist fyrirlestur hans „Climate Crisis and „the Logic of Masculinist Protection.“

Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig hræðsla margra, þ.á.m. fræðimanna, við hrun siðmenningar í kjölfar loftslagskrísunnar er byggð á misskilningi þar sem við ættum ekki að hræðast sundurliðun samfélagsstrúktúra okkar heldur einmitt áframhald þeirra. Ole Martin styðst við hugmyndir Iris Marion Young um rökvísi karlmannlegrar verndar (e. „the logic of masculinist protection“) og færir rök fyrir því að hræðslan við samfélagshrun láti okkur gjarnan leita verndar með því að gefa þeim sem eru við stjórnartaumana aukið vald á sama tíma og við töpum félagslegu trausti. Þannig er líklegt að núverandi valdastrúktúrar, bæði hnattrænir og staðbundnir, eflist í loftslagskrísunni.
Rökvísi karlmannlegrar verndar grefur undan þeim eiginleikum sem við þurfum helst á að halda til að komast í gegnum hamfarir einsog umhyggju, félagslegu trausti og samhjálp. Fyrirlesturinn greinir félagsleg og pólitísk viðbrögð við nýlegum hamförum til að skoða við hverju er að búast, og hvað við getum lært, nú þegar loftslagshamfarir færast í aukana.

Ole Martin Sandberg er doktorsnemi í heimspeki og kennari í námskeiðinu Siðfræði náttúrunnar við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn byggir á væntanlegri grein hans í Radical Philosophy Review sem ber titilinn „Climate Disruption, Political Stability, and Collective Imagination.“

Fyrirlesturinn er fluttur á ensku, er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Hádegisfyrirlestraröð RIKK og GRÓ-GEST á haustmisseri 2019 er tileinkuð kynjuðum víddum loftslagsbreytinga. Markmið fyrirlestraraðarinnar er að skoða hið knýjandi málefni sem loftslagsbreytingar eru út frá kynjafræðilegu og jafnréttissjónarhorni.

Fyrirlesturinn er fluttur fimmtudaginn 23. janúar, kl. 12:00-13:00, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Fyrirlestraröðin er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
23.01.2020 12:00-13:00
Lecture
Þjóðminjasafnið, Reykjavík, Iceland