• Description
  • Date
  • Info
Námskeið fyrir karla sem vilja beita sér í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi
Boðið er upp á ítarlegt tveggja daga námskeið um kynferðisofbeldi gegn konum, með sérstaka áherslu á hvað karlar geta gert til að berjast gegn því. Tilgangurinn er að þátttakendur öðlist dýpri skilning á mikilvægum hugtökum og viðfangsefnum sem varða kynferðisofbeldi gegn konum. Námskeiðið er haldið af starfsfólki Stígamóta, og áherslunnar eru byggðar á reynslu Stígamóta af baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Farið verður yfir hvernig baráttan hefur þróast og af hverju það er mikilvægt að karlar taki þátt í baráttunni.
Markmiðið er að fara dýpra í mikilvæga þætti þessarar umræðu, þ.a.m. fjölbreyttar birtingarmyndir kynferðisofbeldis, afleiðingar kynferðisofbeldis, brotaþolavæn umræða, reynsluheimur kvenna, kynjamisrétti, klám, nauðgunarmenning, forréttindi karla og umræðan um ofbeldismenn. Áherslan verður á uppbyggilegar umræður um þessi þemu með það að markmiði að skoða hvað karlmenn geta gert í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Til þess verða skoðaðar ólíkar áherslur og einnig verður farið í hugarflæðisvinnu um aðgerðir til að virkja fleiri karla. Dagskráin verður fjölbreytt með margskonar fyrirlestrum, heimildamyndum, æfingum og umræðum. Hún verður kynnt þegar styttist í námskeiðið. Námskeiðið er ókeypis og er fyrir karla 18 ára og eldri.

Umsóknarfrestur: 1. febrúar 2018

Skráning fer fram hér:
https://goo.gl/forms/TW6fxE9vrEmCRvCR2

Nánari upplýsingar: hjalmar@stigamot.is
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
24.02.2018 - 25.02.2018 09:00-16:00
Course
Stígamót, Laugavegi 170, 2. hæð, Iceland