• Description
  • Date
  • Info
Tölum um ofbeldismenn
Sagt verður frá niðurstöðum könnunar sem Kvennaathvarfið lét vinna á upplifun kvenkyns þolenda heimilisofbeldis og persónuleikaeinkennum ofbeldismanna. Tekin verður fyrir reynsla þátttakenda af ofbeldinu, afsakanir ofbeldismanna, rauðu ljósin, "fyrrverandi eru geðveikar", svör þátttakenda við spurningunni: af hverju féllstu fyrir honum?, ásakanir um framhjáhald og þau neikvæðu og jákvæðu atriði sem þátttakendur nefndu um ofbeldismanninn.
Drífa Jónasdóttir er með B.Sc. í sálfræði frá HÍ, M.Sc. í hagnýtri félagslegri sálfræði frá Sussex University og Post graduate diploma í Afbrotafræði frá University of Brighton. Hún er í doktorsnámi við læknadeild HÍ sem stendur og jafnframt verkefnastýra í Kvennaathvarfinu.

Viðburðurinn er öllum opinn, frítt inn og húsnæðið er aðgengilegt fyrir fólk sem notar hjólastóla.
Organizer: Stígamót
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
23.01.2020 12:00-13:00
Lecture
Reykjavík, Iceland