• Description
  • Date
  • Info
Jafnréttisþing
Jafnréttisþing verður haldið í Hörpu fimmtudaginn 20. febrúar 2020 undir yfirskriftinni Jafnrétti í breyttum heimi: Kyn, loftslag og framtíðin.

Á þinginu verður fjallað um samspil jafnréttis- og umhverfismála í tengslum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérstaklega verður litið til framtíðaráskorana í tengslum við tæknibreytingar, loftslagsbreytingar og nýja atvinnu- og lifnaðarhætti og velt upp hvaða áhrif þessir þættir kunna að hafa á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi.
Nánari upplýsingar og skráning á vefsíðunni jafnretti2020.is.

Dagskrá:
Jafnréttisþing 2020 er helgað jafnrétti í breyttum heimi. Fjallað verður um samspil jafnréttis- og umhverfismála í tengslum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérstaklega verður litið til framtíðaráskorana í tengslum við tæknibreytingar, loftslagsbreytingar og nýja atvinnu- og lifnaðarhætti og velt upp hvaða áhrif þessir þættir kunna að hafa á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi.

09.30: Húsið opnar

10:00: Setning Jafnréttisþings 2020

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

Fundarstjóri: Dr. Silja Bára Ómarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs

10.15: Verður loftslagsvandinn leystur án jöfnuðar?

Hildur Knútsdóttir, rithöfundur

Pallborðsumræður:

Umræðustjóri: Þórir Guðmundsson, ritstjóri frétta á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Þátttakendur í pallborði:

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, aktívisti

Achola Otieno, MA í alþjóðasamskiptum og stjórnarkona í W.O.M.E.N., félagi kvenna af erlendum uppruna

11.45: Hádegisverður

12.30: Hvernig þarf lífið að breytast?

Stuttar hugvekjur og pallborðsumræður undir stjórn Sigríðar Víðis Jónsdóttur, sérfræðings

Innbakað (ó)jafnrétti - val eða vandi?
Lilja Dögg Jónsdóttir, hagfræðingur og MBA. Einn höfunda skýrslunnar Ísland og fjórða iðnbyltingin

Sanngjörn umskipti í þágu jafnréttis
Drífa Snædal, forseti ASÍ

Jafnrétti og loftslagsmál
Bjarni Herrera Þórisson, framkvæmdastjóri og einn eigenda CIRCULAR Solutions sem sérhæfir sig í sjálfbærni fyrirtækja

Sjálfbær samfélög og jafnrétti til tækifæra
Einar Freyr Elínarson, oddviti Mýrdalshrepps og fv. formaður ungra bænda

Tæknibreytingar og samfélagsbreytingar. Samspil
Smári McCarthy, þingmaður Pírata

13.45: Tónlistaratriði: Hljómsveitin Eva

14.00: Átakaorðræða í loftslags- og jafnréttisumræðu.

Hvernig tölum við saman?

Er klofningur milli kynja, kynslóða, landsvæða og hagsmunahópa?

Erindi og pallborðsumræður undir stjórn Höllu Gunnarsdóttur, ráðgjafa ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum

Skautun, skynsemi og samfélag
Dr. Finnur Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands.

Tilfinningar ofar rökum? Samfélagsmiðlar, hamfarahlýnun og jafnrétti
Dr. Jón Gunnar Ólafsson, aðjúnkt í fjölmiðlafræði við Lundúnarháskóla og starfandi forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

Eru taupokar stelpulegir
Dr. Auður H. Ingólfsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, eigandi og framkvæmdastjóri Transformia ehf.

Sökudólgar og afgangsstærðir: loftslagsmál með augum fötlunar
Freyja Haraldsdóttir, doktorsnemi, aðjúnkt og aðgerðarsinni

15.15: Kaffihlé

15.45: Hvað brennur á ungu fólki?

Dagskrá skipulögð í samstarfi við Stúdentaráð Háskóla Íslands.

Umræðustjórn: Jóna Þórey Pétursdóttir forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands

Fyndnustu mínar

Útlitskröfur í umhverfisvænu samfélagi
Karen Björg Þorsteinsdóttir, sér um tískuumfjöllun hjá Rúv núll, er með BS í sálfræði og er uppistandari.

Ógnar veganismi karlmennskunni?
Eydís Blöndal, aktívisti:

Er líkami minn ekki nógu umhverfisvænn?
Aðalbjörg Egilsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP25).

17.00: Ráðstefnuslit og móttaka í Hörpu
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
20.02.2020 08:30-18:00
Conference
Reykjavík, Iceland