• Description
  • Date
  • Info
„Ég vil bara vera virkur þátttakandi í samtalinu“. Eldri konur í sjónvarpsefni samtímans
Eyrún Lóa Eiríksdóttir er annar fyrirlesari fyrirlestraraðar RIKK á haustmisseri 2019 og nefnist fyrirlestur hennar „„Ég vil bara vera virkur þátttakandi í samtalinu“. Eldri konur í sjónvarpsefni samtímans“. Fyrirlesturinn er fluttur fimmtudaginn 12. september, kl. 12:00-13:00, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Doktorsritgerð Eyrúnar Lóu nefnist Hin kvenlæga rödd í sjónvarpsefni samtímans (undir leiðsögn Öldu Bjarkar Valdimarsdóttur, dósents) en þar er staða nútímakonunnar rannsökuð í tengslum við birtingarmyndir hennar á streymisveitunni Netflix. Fjallað er um nýjar áherslur þegar kemur að kvenhlutverkum og hvernig söguþráður virðist hafa tekið breytingum í takt við jafnréttiskröfur. Í erindinu er sjónvarpsþátturinn Grace & Frankie tekinn til skoðunar en þeir fjalla um tilveru(rétt) eldri kvenna og málefni tengd þeim sem hafa ekki endilega átt upp á pallborðið í meginstraumssjónvarpsþáttum, þ.e. atvinnuþátttöku eldri kvenna, vinskap og sambýli á efri árum, kynlíf/hjálpartæki ástarlífsins sem og ákvörðunarrétt yfir eigin líkama, búsetu og mat á eigin færni.

Eyrún Lóa er doktorsnemi í almennri bókmenntafræði, með MA-próf í almennri bókmenntafræði og hagnýtri ritstjórn og útgáfu. Eyrún Lóa hefur lagt stund á kennslu í bókmenntafræði og ritstjórn sem og hönnun prentgripa. Helstu rannsóknarefni hennar eru á sviði sjónvarpsþáttagreiningar, femínisma/póstfemínisma og bókmenntafræði (skvísusögur og ofurhetjur).
Fyrirlesturinn er fluttur á íslensku og er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Organizer: RIKK
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
12.09.2019 12:00-13:00
Lecture
Þjóðminjasafn Íslands - Fyrirlestrarsalur, Iceland