• Description
  • Date
  • Info
Allskonar störf fyrir allskonar fólk
Ráðstefnan, Allskonar störf fyrir allskonar fólk, verður haldin fimmtudaginn 16. maí kl. 10-16 á Hilton Nordica. Á ráðstefnunni verður fjallað um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu, rýnt í framtíðina, hvað er að gerast núna, samfélagslega ábyrgð, hið opinbera og atvinnulífið.
Skráningu er að finna í meðfylgjandi hlekk.
Dagskrá
Framtíðarsýn
Ávarp. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Horft til framtíðar. Sveinbjörn Ingi Grímsson sérfræðingur í framtíðarfræðum hjá KPMG
Inngildur vinnumarkaður - hvað er það? Sigurjón Unnar Sveinsson lögmaður hjá ÖBÍ, Halldóra Þ. Jónsdóttir forstöðumaður hjá Ási styrktarfélagi og Halldór Sævar Guðbergsson varaformaður ÖBÍ
Hvað virkar, hvað er að gerast núna?
Hver er staðan og hvað er framundan? Laufey Gunnlaugsdóttir deildarstjóri hjá Vinnumálastofnun
Ný stefna í atvinnumálum fólks með skerta starfsgetu hjá RVK. Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Allir með Hlutverk! Sigurður Viktor Úlfarsson framkvæmdastjóri Múlalundar vinnustofu SÍBS og Sigríður Hauksdóttir verkefnastjóri hjá Norðurþingi
Á vinnumarkaðinn í lok starfsendurhæfingar. Jónína Waagfjörð sviðsstjóri þróunar atvinnutengingar hjá VIRK.
Samfélagsleg ábyrgð og atvinnulífið
Fjölbreytileikinn býr til góðan vinnustað. Sólrún Kristjánsdóttir mannauðsstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Sýn atvinnurekanda. Davíð Þorláksson forstöðumaður samkeppnishæfni hjá SA
Hlutastörf fyrir fólk með skerta starfsgetu og framtíðarsýn í atvinnumálum. Bjarnheiður Gautadóttir skrifstofustjóri hjá Velferðarráðuneytinu.
Hlutverk - samtök um vinnu og verkþjálfun, og málefnahópur ÖBÍ um atvinnumál, standa sameiginlega að ráðstefnunni. Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
16.05.2019 10:00-16:00
Conference
Hilton Reykjavik Nordica, Iceland