• Description
  • Date
  • Info
Málþing um um Genfarsamningana og lög í stríði.
Rauði krossinn á Íslandi og Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, með stuðningi utanríkisráðuneytisins, standa að málþingi fimmtudaginn 21. mars kl.09-12 í Norræna húsinu um Genfarsamningana og lög í stríði.

Málþinginu er ætlað að auka þekkingu fagfólks og almennings á alþjóðlegum mannúðarlögum, einkum Genfarsamningunum. Í vopnuðum átökum gilda lög og eitt af meginverkefnum Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) er að kynna fyrir stjórnvöldum og stríðandi fylkingum um allan heim hvaða réttindi og skyldur hvíla á þeim á meðan á átökum stendur. Umfjöllunarefni málþingsins afmarkast við lög í stríði (International humanitarian law, IHL), með áherslu á vernd almennra borgara í átökum gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áhrif vopnaðra átaka á heilbrigðisþjónustu. Þá verður jafnframt fjallað um mannúðarréttinn og íslenskt lagaumhverfi, þá sérstaklega innleiðingu refsiákvæða mannúðarréttarins í íslensk lög.

Málþingið fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Léttar veitingar í boði.

Dagskrá:
09.00 Page Wilson, dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, fundarstjóri: Introduction of the Geneva Conventions
09.30 Jonathan Somer, sérfræðingur í mannúðarrétti hjá danska Rauða krossinum, Innovative efforts to implement the prohibition of sexual violence in armed conflict
10.10 Áslaug Arnoldsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sendifulltrúi Rauða kross Íslands, Health care in armed conflict
10.40 Kaffihlé
10.50 Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Iceland and domestic criminalization of war crimes: Law nr. 144/2018 on the crime of genocide, crimes against humanity, war crimes and the crime of aggression.
11.20 Panel umræður
11.40 Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra, Lokaorð
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
21.03.2019 09:00-12:00
Seminar
Norræna húsið, Iceland