• Description
  • Date
  • Info
Um hið persónulega og hið pólitíska: Frá kvennabaráttu til mannréttinda
MARK Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna og Heimspekistofnun Háskóla Íslands kynna:

Miðvikudaginn 21. nóvember kl. 12-13 í Hb-5 (Háskólabíó, stofu 5) mun dr. Valgerður Pálmdóttir kynna doktorsrannsókn sína í hugmyndasögu, Um hið persóulega og hið pólitíska: Frá kvennabaráttu til mannréttinda (e. Perplexities of the personal and the political: how women's liberation became women's human rights).
Valgerður varð ritgerðina við háskólann í Umeå 9. nóvember sl. Í rannsókninni fjallar Valgerður um hvernig baráttan gegn ofbeldi gegn konum hefur tekið breytingum í áranna rás. Hin femíníska orðræða sem var ráðandi á 7. áratug síðustu aldar var smám saman leyst af hólmi af orðræðu um mannréttindi kvenna. Eftir að hin alþjóðlega kvennahreyfing tileinkaði sér tungutak og aðferðir mannréttindabaráttunnar á 10. áratugnum færðist þungamiðjan frá því að efla eigin vitund kvenna og sjálfsmynd, yfir í að vekja pólitíska meðlíðan annarra. Áherslan á meðvitund kvenna og réttláta reiði yfir ranglátu kerfi vék smám saman fyrir áherslu á að auka skilning annarra á stöðu kvenna, sérstaklega aðila með stofnanalegt og pólitískt vald.

Í ritgerðinni skoðar Valgerður femínískar hugmyndir um persónulegan vitnisburð og hvernig hann er nýttur í kvennapólitískri baráttu. Til grundvallar leggur hún tvo svokallaða alþýðudómstóla (people’s tribunals) í málefnum er varða ofbeldi gegn konum. Hugmyndina um alþýðudómstóla fékk kvennahreyfingin frá baráttunni gegn Víetnam-stríðinu á 7. áratug síðustu aldar, en alþýðudómstólar eru nokkurs konar táknræn réttarhöld án lagalegs valds, með það að markmiði að gagnrýna ranglæti og varnarleysi jaðarsettra hópa og auka vitund þeirra um eigin stöðu.

Merking hins persónulega vitnisburðar er miðlæg í rannsókninni. Rannsóknin sýnir að einkunnarorðin „hið persónulega er pólitískt“ hafa margræða þýðingu í sögu kvennabaráttunnar og að mismunandi skilningur hefur verið lagður í þau allt eftir sögulegu, pólitísku og fræðilegu samhengi. Slagorðið „hið persónulega er pólitískt“ er því ekki barn síns tíma heldur lifandi baráttutæki sem nýst getur undirskipuðum og jaðarsettum hópum í margvíslegu samhengi.

Öll velkomin

Organizer: RIKK
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
21.11.2018 12:00-13:00
Lecture
Háskólabíó - stofa 5 (Hb-5), Iceland