• Description
  • Date
  • Info
Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2018
Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent mánudaginn 19. nóvember á morgunfundi um jafnréttismál í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 8.30-10.00. Efni fundarins er vinnustaðamenning og jafnrétti á vinnumarkaði.

Boðið er upp á kaffiveitingar frá kl. 8.10.

Dagskrá

Setning
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

Áhrif #metoo – breytingar og áskoranir
Ásta Jóhannsdóttir, nýdoktor á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands

Fótbolti og femínismi
Magnús Orri Schram, ráðgjafi

Handhafi hvatningarverðlauna jafnréttismála 2017
Stefán Sigurðsson, forstjóri Sýnar

Hvatningarverðlaun jafnréttismála
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar afhendir verðlaunin

Fundarstjóri: Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Skráning á fundinn fer fram á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins, https://sa.is/frettatengt/vidburdir/hvatningarverdlaun-jafnrettismala-2018

Að verðlaununum standa atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands en sérstakur samstarfsaðili er UN Women á Íslandi.
Organizer: Samtök atvinnulífsins
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
19.11.2018 08:30-10:00
Meeting
Reykjavík, Iceland