• Description
  • Date
  • Info
Metoo í Borgarleikhúsinu
#metoo baráttan hefur farið sem bylgja um heim allan í kjölfar þess að leikkonur í Bandaríkjunum stigu fram og sökuðu framleiðandann Harvey Weinstein um kynferðislega áreitni og ofbeldi. En óviðeigandi hegðun, áreitni og ofbeldi virðast ekki láta neina starfsstétt ósnortna.

Sunnudaginn 10. desember klukkan 16, á alþjóðadegi mannréttinda, mun fjölbreyttur hópur íslenskra kvenna koma saman á Nýja sviði Borgarleikhússins og lesa frásagnir sem litið hafa dagsins ljós í #metoo barátunni hér á landi. Konurnar og frásagnirnar sem þær lesa eru úr röðum sviðslistakvenna, tónlistarkvenna, stjórnmálakvenna, fjölmiðlakvenna, íþróttakvenna, kvikmyndagerðarkvenna, kvenna í tæknigeiranum og svo mætti lengi telja.

Aðgangur er ókeypis en hægt verður að nálgast miða á heimasíðu Borgarleikhússins: https://www.borgarleikhus.is/syningar/metoo/

Sama dag verða haldnir svipaðir viðburðir á Akureyri, Seyðisfirði og Ísafirði.
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
10.12.2017 16:00-17:00
Cultural event
Borgarleikhúsið, Reykjavík, Iceland