• Description
  • Date
  • Info
Pláss fyrir alla?
Fyrsta málþing vetrarins í málþingsröð Reykjavíkur Akademíunnar, Hugmyndir 21. aldarinnar, verður haldið laugardaginn 16. september næstkomandi í fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar á fjórðu hæð í Þórunnartúni 2, kl. 11:00-14:00.
Að þessu sinni er viðfangsefnið staða kvenna og rými þeirra til virkrar þátttöku í atvinnulífi, stjórnmálum og samfélagslegri umræðu. Á stokk stíga þrjár konur sem hafa lokið doktorsprófi á síðustu fimm árum:

Dr. Sigrún María Kristinsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur.
,,Snertu steininn." Aðferðir til að auka þátttöku kvenna í lausnamiðuðum heimskaffihúsum sem ætlað var að auka mataröryggi, sjálfbærni og félagslegt jafnrétti í fátæku héraði á Indlandi.

Dr. Ásrún Matthíasdóttir, menntunarfræðingur.
Hvar eru stelpurnar í tækninni? Hvers vegna fara stelpur síður í raungreinar (s.s. tölvunarfræði) og hvað getum við gert til að auka aðsókn þeirra?

Dr. Auður Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur.
,,Hið óljúfa dómarasæti." Hvaða raddir eiga erindi á vettvangi menningargagnrýninnar?

Umræðustjóri málþingsins er dr. Íris Ellenberger, sagnfræðingur.

Aðgangur er ókeypis. Léttar veitingar í boði.
Organizer: Reykjavíkur Akademían
Submitted by: Jafnrettisdagatal
This event for iCaliCal    Share
16.09.2017 11:00-14:00
Lecture
Reykjavíkur Akademían, Iceland